Harma

Harma

The Green Hat, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Directions

Thu 20.08.2026 21:00

HARMA sem er stofnuð í upphafi árs 2025 er samsuða úr nokkrum hljómsveitum. Söngkonan og gítarleikarinn Edda Tegeder og trommarinn Jakob Reynisson eru bæði úr death metal sveitinni Angist, Sölvi Antonsson, gítarleikari kemur úr Akureysku hljómsveitinni Smarty Pants og bassaleikarinn Atli Hergeirsson er úr norðlensku sveitinni Toymachine. Saman leiða þau hesta sína og spila melódískt rokk sem margir hafa viljað tengja við 90' stemminguna. Sjálf segjast þau spila einhverskonar "90' kassagítar folk metal grunge", ef það á að skilgreina það á einhvern hátt. HARMA gaf út smáskífuna Lightless Day í fyrra en fleiri lög sem sveitin hljóðritaði í vor eru væntanleg nú í júlí 2026.

Hljómsveitin Drápa hitar upp.

Performers

  • HARMA
    HARMA

    Meðlimir HARMA eru:

    Edda Tegeder - Söngur/gítar

    Sölvi Antonsson - Gítar

    Atli Hergeirsson - Bassi

    Jakob Reynisson - Trommur

    HARMA má finna á öllum helstu streymisveitum

  • Drápa
    Drápa

    Icelandic metal band