Skaðleg efni í nánasta umhverfi barnsins | Foreldramorgunn

Skaðleg efni í nánasta umhverfi barnsins | Foreldramorgunn

Kópavogur library, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Directions

Thu 01.10.2026 10:00

Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi mun halda erindi um efni í umhverfi barna. Skoðuð verða skaðleg efni í nærumhverfi okkar og af hverju börn eru útsettari fyrir áhrifum þeirra. Rætt verður um skaðsemi mismunandi efna og hvernig hægt er að lágmarka snertingu barna við skaðleg efni í nærumhverfi með einföldum lausnum, upplýstu vöruvali og réttri notkun vara.

Umfjöllunarefni:

– Hvaða efni í nærumhverfi barna eru skaðleg heilsu þeirra?

– Af hverju eru börn sérstaklega viðkvæm fyrir þeim?

– Hvaða áhrif hafa þessi efni?

– Hvar eru þau helst að finna?

– Hvaða vörur er hægt að nota í staðinn?

Öll velkomin. 

Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.

Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

Performers