Skapandi fjölskyldu tónlistarmiðja
Nýi tónlistarskólinn, Grensásvegur 3-5 (3. hæð), 108 Reykjavík Directions
Sun 30.08.2026 12:30
Skapandi fjölskyldusmiðja fer fram í Nýja tónlistarskólanum, Grensásvegi 3, sunnudaginn 30. ágúst milli 13.30-15.30.
Boðið er upp á smiðjuna fjölskyldum algerlega að kostnaðarlausu!
Í smiðjunni munu fjölskyldur taka þátt í því að semja nýja tónlist sem verður flutt við lok samverustundarinnar. Smiðjan er liður í stjórnendanámskeiði fyrir tónlistarkennara og stjórnendur víðsvegar að af landinu öllu. Yfirumsjón með smiðjunni verður í höndum Sigrúnar Sævarsdóttur-Griffiths en þátttakendur í stjórnendanámskeiðinu munu fá að spreyta sig á að stýra afmörkuðum köflum smiðjunnar.
Engin krafa er gerð um fyrri reynslu af tónlist eða hljóðfæraleik, en ef fjölskyldumeðlimir spila á hljóðfæri eru þau eindregin hvött til þess að koma með hljóðfærin með sér!
Smiðjan er ætluð foreldrum og börnum 5 ára og eldri. Smiðjan mun vara í tvær klukkustundir með stuttu hléi, þar sem boðið verður upp á litla hressingu.
Takmarkaður þátttakendafjöldi verður á smiðjunni og því er vert að sækja um sem fyrst!
Skráning á: https://forms.office.com/r/6KBDQQfr8n
Vinsamlegast athugið að Nýi tónlistarskólinn er á þriðju hæð og í húsinu er engin lyfta.
Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths á [email protected]
Performers
-
Sigrun Sævarsdottir-GriffithsI am a musician who specialise in creating new music with groups of people, whoever they are, whatev