MIÐNES - BALL UM VERSLÓ

MIÐNES - BALL UM VERSLÓ

Vagninn Restaurant, Hafnarstræti 19, 425 Flateyri Directions

Sun 02.08.2026 22:00

Það er komið að því. Miðnes ætlar að spila fyrir okkur ball. Þessir síkátu eilífðarunglingar ætla að spila ball fram á nótt þangað til við lekum niður af hamingju og förum bosandi heim til okkar. Þessir menn eru svo lífsglaðir að það er næstum því ógeðslegt. Lagavalið er alltaf skemmtilegt og aldrei að vita nema að Freyr Eyjólfsson grípi í Banjóið. Talandi um Frey, hann er jafnvel tilkyppilegur í smá standup og aldrei að vita nema að hann byrji kvöldið á því, ég sting því uppá því að fólk mæti ekki seinna en 22:00. Bandið byrjar svo ballið um 23:00

Miðaverð er 5000 kr og við seljum inn í hurð.

Performers