⚽ Selfoss - Árborg // STYRKTARLEIKUR

⚽ Selfoss - Árborg // STYRKTARLEIKUR

JÁVERK-völlurinn, Engjavegur 50, 800 Selfoss Directions

Wed 08.07.2026 19:15

Fótbolti

Selfoss tekur á móti knattspyrnufélagi Árborgar miðvikudaginn 8.júlí en þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem liðin mætast í íslenskri mótakeppni. Leikurinn er spilaður í 16-liða úrslitum Powerade bikarsins. Félögin hafa átt í áralöngu, farsælu samstarfi en fjöldi leikmanna frá Selfossi hafa spilað með báðum félögum.

Leikurinn verður styrktarleikur en það kemur til vegna veikinda sem Helga Guðmundsdóttir glímir við. Hún háir nú baráttu við illvígt krabbamein. Að ósk Helgu mun allur ágóði leiksins renna óskertur til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Það er þjónusta sem Helga hefur þurft að nýta sér í sínum veikindum og vill hún leggja sitt af mörkum til þess að styðja við þetta mikilvæga starf sem hefur reynst henni svo vel. Helga er móðir Arons Fannars Birgissonar, leikmanns Selfoss, en hann hefur einnig leikið með Árborg.

Hér má lesa um heimahjúkrun HSu: https://island.is/s/hsu/heimahjukrun-hsu

Leikurinn hefst klukkan 19:15 á JÁVERK-vellinum og ætla félögin í sameiningu að blása til veislu en nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.

Miðasala fyrir viðburðinn fer fram á STUBB en allir sem versla sinn miða í gegnum STUBB fyrir miðvikudag fara í pott og eiga möguleika á að vinna Selfoss eða Árborgar treyju. Við hvetjum fólk til þess að ganga frá miðakaupum sem allra fyrst.

Miðasala hér: https://stubb.is/events/bp8gjb

eða í STUBB appinu.

Lágmarksmiðaverð er 2000 krónur en í boði er að greiða hærri upphæð fyrir miðann og hvetjum við þau sem eru aflögufær að gera það.

Sjáumst á vellinum!