Árin
Borgarleikhúsið | Nýja Svið, Listabraut 3, 103 Reykjavík Directions
Sun 21.03.2027 20:00
Sumar sýningar snerta okkur vegna þess að þær segja sögu sem við þekkjum – jafnvel áður en við höfum heyrt hana. Árin er slík sýning. Byggð á rómaðri skáldsögu Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux, verkið leiðir okkur í gegnum minningar, ástir, missi, fjölskyldulíf, samfélagsbreytingar og allt það sem mótar manneskjuna á heilli mannsævi.
Fimm leikkonur – Berglind Alda, Katla Margrét, Sigrún Edda, Sólveig Arnars og Þórunn Arna – túlka sömu manneskjuna á ólíkum skeiðum lífsins, með ólíkar raddir og reynslu – og skapa sviðsverk sem er í senn persónulegt, kunnuglegt og hjartnæmt. Árin er sýning um lífið sem líður hjá í hinu stóra jafnt sem smáa, um augnablikin sem við reynum að halda í og sögurnar sem búa áfram í okkur. Árin er ein áhrifamesta leikhúsupplifun vetrarins.
Höfundur: Annie Ernaux
Leikgerð: Marie Bjørn
Þýðing: Auður Ava Ólafsdóttir
Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir
Leikmynd og búningar: Elín Hansdóttir
Leikarar:
Berglind Alda Ástþórsdóttir
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
Sólveig Arnarsdóttir
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Performers
-
Katla Margrét ÞorgeirsdóttirPresenter of the event
-
Sólveig Arnarsdóttir
Actress.