TRASHMASTER
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions
Wed 05.08.2026 20:00
Trashmaster er nýjasta sköpunarverkið frá Vesen Backstage – paródískur panelþáttaviðburður fyrir hinsegin fólk sem fílar djók, drag, dívur, og heilbrigðan skammt af usla, ásamt því að kinka kolli að alþjóðlegu grínþáttaseríunni Taskmaster (sem þetta er þó algjörlega löglega aðskilið frá).
Við tökum yfir sal tvö í Bíó Paradís og fáum til okkar þátttakendur úr hinsegin sviðslistum til að keppa í áskorunum sem eru hver annarri kaotískari - en þó allar að einhverju leiti tengdar sviðslistum og performans.
Þátttakendur eru alþjóðlega kabarettan Daphne Always, burlesque-bomban Bobbie Michelle, dansandi dragdívan Agatha P., hin óviðjafnanlega Ava Gold, og hávaxnasta ljóska Reykjavíkur, Úlla la Delish.
Meðlimir hinsegin- og/eða jaðarsviðslistasamfélagsins sem þurfa á fjárhagslega aðgengilegum miða að halda geta sent okkur message hér ✨
Í Bíó Paradís er hjólastólaaðgengi og aðgengilegt salerni. Ef spurningar vakna um aðgengi má senda okkur skilaboð eða email á [email protected]
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Performers
-
Daphne Always
Cabaret Icon, Actor, Transfemme Delight
-
Bobbie Michelle
Performer in the upcoming show
-
Ava Gold
Artist and showgirl