BREK - Ný spor í slóð, útgáfutónleikar

BREK - Ný spor í slóð, útgáfutónleikar

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Directions

Fri 25.09.2026 20:00

BREK - Ný spor í slóð, útgáfutónleikar

Hljómsveitin BREK hefur verið starfandi frá árinu 2018 og leikur alþýðuskotna tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum, m.a. þjóðlagatónlist, jazzi og poppi. Sveitina skipa þau Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari, Sigmar Þór Matthíasson kontrabassaleikari og Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari.
Öll eru meðlimir sveitarinnar með ólíkan bakgrunn í tónlist þar sem þessi mismunandi áhrif, jazz, klassíkur, bluegrass, söngtónlistar og popptónlistar, í bland mynda hinn sérstaka hljóðheim og stíl hljómsveitarinnar BREK.

Eftir að hafa hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 fyrir sína fyrstu plötu gefur BREK nú út sína aðra plötu í fullri lengd. Platan inniheldur 11 ný lög sem samin voru á árunum 2021 til 2025. Á plötunni nýtur Brek liðsinnis trommuleikarans Eriks Qvick í nokrum lögum auk strengjakvartetts skipuðum þeim Þórunni Ósk Marinósdóttur, Sigurði B. Gunnarssyni, Gunnhildi Daðadóttur og Sólveigu Steinþórsdóttur.

Í tilefni af útgáfu plötunnar verða haldnir veglegir útgáfutónleikar í Salnum í Kópavogi föstudaginn 25. september þar sem nýja platan, Ný spor í slóð, verður leikin í heild sinni ásamt eldra efni.

Performers

  • BREK
    BREK

    Brek is an acoustic band from Iceland. Band members are Harpa Þorvaldsdóttir singer and pianist, Jóhann Ingi Benediktsson on guitar, Guðmundur Atli Pétursson on mandolin and Sigmar Þór Matthíasson on double bass. In their music they seek to intertwine influences from different places to make a chatchy and comfortable mood but yet demanding to the audience. They use voices combined with rythmic and dynamic dialouge of the instruments to drive the music with.

  • Erik Qvick

    Drummer.

  • Strengjakvartett

    String quartet performing Baroque music