Húllað inn í hamingjuna - Uppistand

Húllað inn í hamingjuna - Uppistand

Fri 03.07.2026 17:00

Eru miðaldra konur aðeins einni Temu-pöntun frá fullkominni hamingju? Getur húllahringur virkilega bjargað hjónabandinu? Vantar konur á breytingaskeiðinu kannski bara aðeins meira blóðflæði og persónulegt rými?

Fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir fer yfir málin á 15 mínútum í kómísku uppistandi sem segir meira um hamingjuna en öll sjálfshjálparnámskeið sem þú hefur farið á.

Húllað inn í hamingjuna er lifandi og frumlegur viðburður þar sem húllahringalist og húmor fléttast saman á skemmtilegan hátt. Viðburðurinn byggir á samspili líkamlegrar tjáningar og frásagnar, þar sem létt og gleðileg stemning ræður för, bæði í hreyfingu og munnlegri tjáningu.

📍Viðburðurinn er haldinn utandyra við Þingvallastræti 8 (beint á móti Andapollinum). Frír aðgangur. Viðburðinn er hluti af Listasumri Akureyrar.

📍Gestir klæði sig samkvæmt veðri. DJ Ragga heldur uppi góðri stemmingu og sér til þess að viðstaddir dilli sér inn í hamingjuna.

💥Ef þú ert kona á miðjum aldri og hélst að hamingjan væri flókið fyrirbæri þá er þetta viðburður fyrir þig!

💥Ef þú ert ung og vitlaus í leit að ást og ævintýrum, þá er gott fyrir þig að heyra hvað bíður þín í raun og veru í lífinu!

💥Ef þú ert eiginmaður sem átt konu á breytingarskeiðinu farðu þá beint á Temu og keyptu húllahring handa henni!