Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 40 ára

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 40 ára

Akureyri Church, Eyrarlandsvegur, 600 Akureyri Directions

Sun 05.07.2026 17:00

SUMARTÓNLEIKAR Í AKUREYRARKIRKJU 40 ára

Opnunartónleikar afmælisárs - Sumarljóð

Akureyrarkirkju sunnudaginn 5. júlí kl. 17

Aðgangur er ókeypis og tekið á móti frjálsum framlögum.

Margrét Árnadóttir sópran og Páll Barna Szabó píanóleikari opna 40 ára afmælishátið Sumartónleika í Akureyrarkirkju.

Margrét og Páll flytja sönglög eftir Fanny Mendelssohn, Clöru Schumann, Josephine Lang og Jórunni Viðar, auk þess að frumflytja nýtt sönglag eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur.

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru nú haldnir í 40. sinn. Af því tilefni verður nýtt tónverk, sérstaklega pantað í afmælisgjöf til Sumartónleika og tónleikagesta, frumflutt á hverjum tónleikum í sumar. En Sumartónleikar í Akureyrarkirkju eru haldnir kl. 17 alla sunnudaga í júlí.

Aðgangur er jafnan ókeypis og tekið á móti frjálsum framlögum.

Menningarsjóður Akureyrarbæjar, sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.