María Qing og Ásta Dóra - Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ

María Qing og Ásta Dóra - Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ

Hallgrim's Church in Hvalfjord, Saurbærjarvegur, 301 Akranes Directions

Sun 26.07.2026 16:00

Tvær ungar tónlistarkonur sem eiga glæsta framtíð fyrir sér, sameina krafta sína á þessum tónleikum.

Ásta Dóra Finnsdóttir er 19 ára og hóf píanónám samkvæmt Suzuki-aðferðinni fjögurra ára gömul. Kennarar hennar voru Anna Fossberg Kjartansdóttir og Kristinn Örn Kristinsson. Frá 2018 til 2024 stundaði hún samhliða píanónám á Íslandi og í Noregi; hjá Marinu Pliassovu við Barratt Due tónlistarskólann í Osló og við Menntaskóla í tónlist hjá Peter Máté. Ásta Dóra lauk stúdentsprófi 2025 og hóf síðan nám við Curtis Institute of Music í Fíladelfíu í Bandaríkjunum, hjá Ignat Solzhenitsyn.

Hún þreytti frumraun sína sem einleikari, 14 ára, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur tekið þátt í fjölmörgum píanókeppnum, s.s. Samson Francois keppninni í Frakklandi og Van Cliburn Junior Piano Festival and Competition í Texas.

María Qing Sigríðardóttir er 22 ára og hóf sellónám sitt fimm ára að aldri. Vorið 2022 lauk hún framhaldsprófi í sellóleik frá Tónskóla Sigursveins og voru Gunnar Kvaran, Örnólfur Kristjánsson og Ólöf Sigursveinsdóttir kennarar hennar. María stundar nú nám hjá Próf. Conradin Brotbek við tónlistarháskólann í Stuttgart. María lék einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2024 sem ein af sigurvegurum ungra einleikara og hún var meðlimur Ungsveitar S.Í árin 2019-2022. Hún hefur einnig komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins. Árið 2025 var María starfsnemi í Philharmonisches Staatsorchester Mainz.

Síðastliðið ár kom hún fram á tæplega sjötíu margbreytilegum tónleikum þar sem ástríða hennar fyrir kammertónlist og samvinnu við tónlistarmenn fékk að njóta sín. María er styrkhafi Yehudi Menuhin Live Music Now og leggur áherslu á að miðla tónlist á fjölbreytilegan hátt til áheyrenda sinna.

Aðgangur 3.500 kr.