Ljóðasöngvar eftir Schubert, Schumann og Brahms - Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ
Hallgrim's Church in Hvalfjord, Saurbærjarvegur, 301 Akranes Directions
Sun 02.08.2026 16:00
Benita Borbonus, sópran, Alexander Schmidt, bariton, Hrönn Þráinsdóttir, píanó
Benita og Hrönn kynntust við tónlistarnám í Freiburg. Síðar bættist eiginmaður Benitu, Alexander, í hópinn og hafa þau haldið saman tónleika í Þýskalandi og nú er röðin komin að Íslandi.
Þau flytja okkur dúetta úr þýskum þjóðlögum í útsetningu Jóhannesar Brahms , fagra ljóðasöngva Roberts Schumann og Franz Schubert þar sem Grímur Helgason, klarinettuleikari bætist í hópinn í verkinu “Der Hirt auf dem Felsen”.
Benita og Alexander syngja bæði í Útvarpskórnum í Köln og hafa komið fram víðs vegar í óperum og á tónleikasviði. Hrönn er ein af þekktustu meðleikurum okkar og hefur leikið með öllum helstu söngvurum landsins.
Tónleikarnir eru tilhlökkunarefni fyrir alla unnendur ljóðasöngs.
Verð aðgöngumiða er kr. 3.500 og er miðasala við inngang.