Við syngjum tvö

Við syngjum tvö

Miðgarður Varmahlíð, v Birkimel, 561 Varmahlíð Directions

Fri 25.09.2026 20:00

Við syngjum tvö

Óskar Pétursson & Diddú

Tvær af ástsælustu söngraddum þjóðarinnar leiða nú saman krafta sína á tónleikunum Við syngjum tvö.

Óskar Pétursson og Diddú hafa hvort um sig átt einstakan feril og glatt landsmenn um áratugaskeið með söng sínum, hlýju og einstakri sviðsframkomu. Nú gefst fágætt tækifæri til að upplifa þau saman á sviði þar sem þau flytja lög af ýmsu tagi sem mörg skipa sérstakan sess í hjörtum okkar.

Á efnisskránni verða þeirra eftirlætis lög, þar á meðal íslenskar perlur, sígild dægurlög, dúettar og einsöngslög.

Léttur húmor og hlý stemmning hefur ávallt einkennt þau Óskar og Diddú og þeim verður ekki skotaskuld úr að krydda tónleikana með skemmtilegum sögum. Með þeim á sviði verður einvalið hljóðfæraleikara undir stjórn Jóns Ólafssonar, sem skapar fallega umgjörð utan um þessar tvær einstöku raddir.

Við syngjum tvö eru tónleikar sem höfða til allra sem elska góða tónlist, fallegan söng og skemmtilegar sögur.

Tryggðu þér miða í tæka tíð – þetta eru tónleikar sem þú vilt ekki missa af.


Performers

  • Óskar Pétursson

    Guest performer known for his Christmas songs.

  • Diddú
    Diddú

    Diddú is a renowned Icelandic singer known for her performances.