Árin

Árin

Borgarleikhúsið | Nýja Svið, Listabraut 3, 103 Reykjavík Directions

Sat 06.03.2027 20:00

Sumar sýningar snerta okkur vegna þess að þær segja sögu sem við þekkjum – jafnvel áður en við höfum heyrt hana. Árin er slík sýning. Byggð á rómaðri skáldsögu Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux, verkið leiðir okkur í gegnum minningar, ástir, missi, fjölskyldulíf, samfélagsbreytingar og allt það sem mótar manneskjuna á heilli mannsævi.  

Fimm leikkonur – Berglind Alda, Katla Margrét, Sigrún Edda, Sólveig Arnars og Þórunn Arna – túlka sömu manneskjuna á ólíkum skeiðum lífsins, með ólíkar raddir og reynslu – og skapa sviðsverk sem er í senn persónulegt, kunnuglegt og hjartnæmt. Árin er sýning um lífið sem líður hjá í hinu stóra jafnt sem smáa, um augnablikin sem við reynum að halda í og sögurnar sem búa áfram í okkur. Árin er ein áhrifamesta leikhúsupplifun vetrarins.  


Höfundur: Annie Ernaux

Leikgerð: Marie Bjørn

Þýðing: Auður Ava Ólafsdóttir

Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir

Leikmynd og búningar: Elín Hansdóttir

 

Leikarar:

Berglind Alda Ástþórsdóttir

Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Sigrún Edda Björnsdóttir

Sólveig Arnarsdóttir

Þórunn Arna Kristjánsdóttir