BRÍÓHLAUPIÐ 2026

BRÍÓHLAUPIÐ 2026

Vagninn Restaurant, Hafnarstræti 19, 425 Flateyri Directions

Sat 01.08.2026 16:30

BRÍÓHLAUÐIÐ 2026 verður haldið að venju Laugardaginn 1 Ágúst. Hlaupið hefst kl 16:30 fyrir utan Vagninn. 3 Bríó stopp eru á leiðinni. Leiðin er einföld (sjá mynd).

Komið og takið þátt. Verðlaun í formi Bríó ásamt þess að fá að sitja drekkutíma á Vagninum með Kormáki Geirharðssyni. Kormákur hefur marga fjöruna sopið í gegnum tíðina. Hann var í hljómsveitunum Oxmá, Q4U, Langa Sela og Skuggunum, KK Band ofl ofl. Í atvinnulífinu hefur hann heldur betur látið til sín taka, hann stofnaði herrafataverslun fyrir 30 árum ásamt vini sínum Skildi Sigurjónssyni sem heitir eftir þeim félögum. Nokkrum árum síðar opnuðu þeir félagar Ölstofu sem hefur heldur betur slegið í gegn. Þess má geta að fyrir nokkrum árum síðan gaf Ölstofan Vagninum pissuskál sem hangir nú á karlaklósetti Vagnsins. Tilvalið að nota hana eftir hlaupið fyrir karlpeninginn. En öllu gríni slepptu þá er þetta íþróttaviðburður og eru allir og öll velkomin, bæði til að keppa og hvetja. Hlökkum til að sjá ykkur. Það er gott að vera BRÍÓ.