Sprotar

Sprotar

SÍM - Samband Íslenskra Myndlistarmanna, Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík Directions

Tue 04.08.2026 10:00

Á sýningunni Spotar í sal sambands íslenskra myndlistarmanna eru ný og nýleg verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur-Place. Á sýningunni skoðar Gunnhildur hvernig mynstur birtast í umhverfi okkar sérstaklega í byggingum og hvort sem þau eru manngerð eða náttúruleg, varanleg eða breytileg. Hún vekur athygli á sífelldri breytingu og umbreytingu sem einkennir borgarlandslagið ásamt spennunni sem myndast á milli reglu og óreiðu, skipulags og tilviljunar.

Umhverfisvitund og hringrásarhugsun eru áberandi í verkunum og eru mörg hver unnin úr endurnýttum efnivið eins og rafmagnsvírum, strigum, timbri, plasti, textíl og málmi. Þannig umbreytir listamaðurinn efnum sem hafa lokið upprunalegu hlutverki sínu í ný verk með litum og formfræði að leiðarljósi sem sprettur af samspili margra miðla. Sýningin er opin frá 10-15 mánudaga til fimmtudaga og stendur til 4. ágúst. Á opnuninni mun listamaðurinn lesa ný ljóð og halda listamannaspjall síðasta sýningardag kl.14-16.

Þess má einnig geta að listamaðurinn er með aðra sýning, Marglaga mynstur, í Listasal Mosfellsbæjar sem byggir á svipuðum grunni.

Gunnhildur Þórðardóttir-Place hefur sýnt verk sín víða á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig gefið út sjö ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir bæði myndlist og ritstörf. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist ásamt heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið.

Performers