Sumarganga | Vatnsendahlíð

Sumarganga | Vatnsendahlíð

Guðmundarlundur í Kópavogi, v. Landsenda, 203 Kópavogur Directions

Tue 11.08.2026 18:00

Einar Skúlason leiðir göngu umhverfis Vatnsendahlíð

Vegalengd um 5 km og uppsöfnuð hækkun rúmir 100 m. Gangan tekur um einn og hálfan til tvo tíma með stoppum.

Upphafsstaður og bílastæði eru við Guðmundarlund.

Gengið verður um Guðmundarlund og upp á Vatnsendahlíð og meðfram henni. Við sjáum ummerki um sinubruna, fyrrum bústaðabyggð á Vatnsendablettum og Elliðavatnið. Sérstök áhersla verður lögð á að minnast á klassískar vísur og ljóð sem tengjast tilteknum fuglum sem gætu orðið á leið okkar. Gæti það verið um lóu, spóa, hrafn eða aðra. Gestum í göngunni er velkomið að fara með slíkar vísur. Við göngum á malarvegum, malbikuðum stígum og misjafnlega góðum slóðum.

Performers

  • MEKÓ - Menning í Kópavogi
    MEKÓ - Menning í Kópavogi

    MEKÓ færir ykkur öflugt og lifandi menningarlíf í Kópavogi.

  • Kópavogsbær
    Kópavogsbær

    Opinber Facebook-síða Kópavogsbæjar. Hér miðlar bærinn upplýsingum um þjónustu, stjórnsýslu, viðburði, mannlíf og annað sem við kemur Kópavogi.