Kvöld tónheilun og kakó
om setrið, Hafnarbraut 6, 260 Njarðvík Directions
Sun 02.08.2026 19:30
Mig langaði að setja þennan viðburð út því hann er á mínum venjulega tíma en skil þó að það líklega eru margir á einhverskonar ferðalagi yfir þessa helgi.
Ég býð ykkur hjartanlega velkomin í kvöld tónferðalag í om setrinu.
Orkan í kringum okkur er alltaf að breytast bæði innra með og allt í kring og því er ég afar þakklátur fyrir það að geta haldið þessi rými með ykkur.
Við byrjum í þetta skiptið klukkan 19:30 á því að fá okkur nærandi og fallegt ceremonial kakó frá perú, lendum saman í rýminu og leyfum svo tónunum að taka okkur djúpt inn á við.
Ég blanda saman reiki heilun og tónheilun í þessum viðburðum og er það alltaf mismunandi hvert rýmið tekur okkur.
Það eina sem þú þarft að gera er að treysta því að taugakerfið þitt veit nákvæmlega hvað það er sem þarf að vinna út að hverju sinni og getum við leyft því að streyma burt áreynslulaust ásamt því að kalla inn það sem við viljum meira af inn í líf okkar.
Ég vinn með gong, kristalskálar, koparhörpu og allskonar hljóðfæri á meðan ferðalaginu stendur, öll hafa þau mismunandi eiginleika og vinna á misjöfnum sviðum.
Ásamt hljóðfærunum er ég með tíðnivél sem vinnur á frumum líkamans og hjálpar okkur að komast ennþá dýpra.
Fólk hefur upplifað að hvílast betur, vinna úr allskonar upplifunum, finna fyrir frið og opnun og er rýmið gert til þess að skapa öruggt rými svo úrvinnsla geti átt sér stað.
Þetta vinnur djúpt á frumum líkamans svo mikilvægt er að drekka vatn eftir á og hlúa vel að sér.
Tíminn kostar 5 þ krónur og stendur yfir frá 19:30-ca 21:00
Til að ég geti gert ráð fyrir fjölda og hversu mikið kakó þarf fyrir viðburðinn þá bið ég ykkur um að senda mér skilaboð á messenger eða á "[email protected]" til að staðfesta.
Hlakka til að sjá ykkur 🙏🤍