Myndljóðasýning Óskars Árna
Skáld Hótel Akureyri, , Skáld Hótel Akureyri Directions
Mon 13.07.2026 00:00
Myndljóðasýning Óskars Árna
Skáld Akureyri
Ljóðin á sýningunni eru ort á fimm ólíkar ritvélar: Adler Tippa 1, Smith-Corona Classic 12, Message Concept 11, Silver Reed EZ 21 og Erika.
Óskar Árni Óskarsson ljóðskáld er fæddur í Reykjavík 1950. Hann er að góðu kunnur fyrir sínar fjölmörgu ljóðabækur, smáprósa og þýðingar. Þetta er þriðja myndljóðasýning Óskars Árna, en hann hefur áður sýnt verk sín í Borgarbókasafninu 2017 og í Hjarta Reykjavíkur 2021. Einnig hafa komið út þrjár bækur með myndljóðum hans.
Verkefnið er hluti af Listasumri 2026
Viðburðadagatal Listasumars má finna á listasumar.is
Performers
-
Listasumar á AkureyriArt summer festival