Ingibjörg Turchi, Magnús Trygvason Eliassen, Tumi Arnason
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Directions
Thu 06.08.2026 20:00
Thursday, August 6th
INGIBJÖRG TURCHI, MAGNÚS TRYGVASON ELIASSEN, TUMI ARNASON
doors 19:30 / show 20:00
2500kr / pay what u can
Þann 6.ágúst nk. mun bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Turchi koma fram í Mengi ásamt Tuma Árnasyni á tenórsaxófón og klarínett og Magnúsi Trygvasyni Eliassen á slagverk.
Í bland við frjálsan spuna munu þau leika efni af plötum Ingibjargar, Meliae (2020) og Stropha (2023), ásamt nýju efni sem verður tekið upp á þessu ári. Tríóið hefur leikið mikið saman síðastliðin misseri og einkennist samspil þeirra af spilagleði og frjálsum spuna sem sækir sér festu í lögin sem leikið er í kringum. Útsetningar eru í höndum tríósins.
Ingibjörg Turchi: Rafbassi
Tumi Árnason: Tenórsaxófónn, klarínett
Magnús Trygvason Eliassen: Slagverk
Bio:
Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Elsa Turchi (1988) hefur verið afar sýnileg í íslensku tónlistarlífi sl.ár og hefur leikið á bassa með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar, svo
sem Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Stuðmönnum og Teiti Magnússyni, bæði á tónleikum og upptökum. Meðal fleiri samstarfsaðila má nefna Röggu Gísla, Mikael Mána, Skuggamyndir frá Býsans, Hróðmar Sigurðsson og Soffíu Björgu, svo fátt eitt sé nefnt. Hún hefur einnig samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur og tekið þátt í verki Ragnars Kjartanssonar, Kona í e-moll, í Listasafni Reykjavíkur. Hún hefur leikið á bassa í hljómsveitum í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og spilað í sjónvarpsþáttum eins og Idol Stjörnuleit og Góðir
Íslendingar.
Ingibjörg gaf út stuttskífuna Wood/Work árið 2017 þar sem rafbassinn var í aðalhlutverki. Í júlí 2020 gaf Ingibjörg svo út sína fyrstu plötu í fullri lengd, Meliae. Hlaut platan titilinn Plata ársins
í Djassflokki á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og tilnefningu til Hyundai Nordic Music Prize sama ár. Árið 2023 kom út hennar seinni plata í fullri lengd, Stropha. Hún fékk 4 stjörnur hjá Heimildinni, var á flestum árslistum 2023 og fékk tilnefningu á Íslensku tónlistarverðlaununum í flokknum Upptökustjórn ársins. Sumarið 2025 gaf hún út dúóplötu með Hróðmari Sigurðssyni gítarleikara, +1 og hlaut hún mikið lof. Í maí 2026 fékk Ingibjörg
tilnefningu til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir plötuna Stropha.
Performers
-
Ingibjörg Turchi (IS)
A bass player and composer known for her unique sound that combines jazz, experimental music, and minimalism.
-
Magnús Trygvason Eliassen
Artist associated with ADHD, Moses Hightower, Nanna, Amiina, Sin Fang and more.