Upprásin | arfi, KHAIRKAN, Strákurinn fákurinn
Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Tue 27.10.2026 20:00
Á þessum tónleikum koma fram Arfi, Khairkan og Strákurinn fákurinn
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.
Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
arfi
Arfa skipa Katrín Helga Ólafsdóttir (K.óla), sem syngur og leikur á bassa, Stefan Vidal-Schneider á trommur og hljóðgervla og Tobias Link á básúnu, effektatæki og hljóðgervla. Leiðir þremenninganna lágu saman á tónlistarsmiðju í danska smábænum Fredericia árið 2022 þar sem þau uppgötvuðu sameiginlegan áhuga á melódísku poppi og spunatónlist
Fyrsta smáskífa sveitarinnar, spring underwater, kom út í maí 2026 í samstarfi við sóleyju, RAKEL og fleiri. Í tónlist arfi mætast togstreitan milli ofurtengdrar stafrænnar menningar og mannlegs eðlis og hún fangar jafnt ringulreiðina sem fegurðina í rafmögnuðum heimi samtímans.
--
KHAIRKHAN er tónlistarmaður frá Innri-Mongólíu, af Khorchin-ættbálknum í austurhluta Innri-Mongólíu, en býr nú í Reykjavík. Hann ólst upp á hinum víðfrægu Khorchin-sléttum, þar sem rík þjóðlagatónlistarhefð og munnmælasögur mótuðu uppvöxt hans.
Khairkhan leggur áherslu á hefðbundin mongólsk hljóðfæri á borð við morin khuur, tsuur og tovshuur, auk mongólsks barkasöngs sem er einn af hornsteinum tónlistar hans. Þjóðlagatónlistin sem hann flytur á rætur sínar einkum að rekja til Khorchin-héraðsins, þar sem margar af mikilvægustu tónlistarhefðum og tónlistarstefnum Mongóla urðu til.
Í dag vinnur Khairkhan að því að þróa nýja sýn á tilraunakennda mongólska þjóðlagatónlist, mótaða af lífi 21. aldar hirðingja í borgarsamfélagi. Markmið hans er að varðveita aldagamlar rætur og hefðir en túlka þær með nútímalegum hætti.
--
Strákurinn fákurinn er akureysk hljómsveit sem spilar hamfara no wave. Meðlimir eru Agnieszka Staroń, Kęstutis Balčiūnas, Drengurinn fengurinn og Stefán Bessason.
Performers
-
Khairkhan
Mongolian musician based in Reykjavík, creating soundscapes of Mongolian landscapes and nomadic life.