Brúðkaupsveislu kvöld

Brúðkaupsveislu kvöld

Múlaberg Bistro & Bar, Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri Directions

Thu 13.08.2026 19:30

Fimmtudaginn 13. ágúst verður haldið spennandi brúðkaupsveislukvöld á Múlaberg Bistro & Bar.

Kvöldið er fyrir öll þau sem eru að skipuleggja brúðkaup, aðra stóra veislu eða einfaldlega vilja fá hugmyndir og innblástur. Á staðnum verða fjölbreyttir þjónustuaðilar sem kynna vörur sínar og þjónustu, auk þess sem gestir geta fengið smakk, ráðgjöf og kynnst því sem er í boði fyrir norðan.

Sama kvöld verður ný heimasíða Brúðkaups hugmynda formlega opnuð og farið verður af stað með spennandi kynningarleik með veglegum vinningum.

📍 Múlaberg Bistro & Bar, Akureyri

📅 Fimmtudagurinn 13. ágúst

🕢 Húsið opnar kl. 19:30

🎟️ Frítt inn

Við biðjum ykkur endilega að merkja við „Mætir“ eða „Hef áhuga“ í viðburðinum svo við getum betur áætlað hversu margir ætla að koma 🤍

Endilega bjóðið með ykkur vinum, fjölskyldu eða öðrum sem eru að skipuleggja brúðkaup eða veislu og höfum gaman 🎉

Performers