Aðdragandinn | Illugi Jökulsson - Þín fornaldar frægð: Það sem höfundar Landnámu töldu vera rétt
Listasmiðjan í Önnustofu, Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður Directions
Fri Nov 27 2026 17:00
Aðdragandinn í nóvember færir okkur skref fyrir skref nær jólum eina síðu í senn. Við fáum höfund í heimsókn hvern föstudag í nóvember þar sem við kynnum spennandi og nýjar bækur í aðdraganda jóla, og Kynstranna allra, jólabókakvölds Bókasafns Hafnarfjarðar. Á Aðdragandanum vörpum við ljósi á allskonar ritverk og njótum flóru íslenskra bókmennta - og svo er auðvitað frábært að hlusta á smá ritsnilld og skreppa svo í Jólaþorpið til að komast í hátíðarskap!
Höfundur síðasta Aðdragandans er Illugi Jökulsson með bókina 'Þín fornaldar frægð: Það sem höfundar Landnámu töldu vera rétt'. Þar tekur Illugi saman frásagnir Landnámu um það landnámsfólk sem er meira en nafnið tómt. Og sú mynd sem Landnámuhöfundar draga upp af landnámsfólki mun koma ýmsum á óvart.
Fræðimenn hafa fyrir löngu áttað sig á að heimildagildi Landnámu er ekki jafn mikið og eitt sinn var talið. En hvaða mynd er teiknuð upp í bókinni af feðrunum frægu (og einstaka móður)?
Illugi Jökulsson skoðar hér hvaðan landnámsfólkið kom, samkvæmt Landnámu, og athugar stöðu þræla, gerð bæja, skipakostinn, yfirráð norrænna manna á Bretlandseyjum og fleira í skemmtilegri og fræðandi bók