Aðdragandinn | Jón Atli Jónasson - Dauðinn er bara myrkur
Listasmiðjan í Önnustofu, Strandgata 28, 220 Hafnarfjörður Directions
Fri Nov 06 2026 17:00
Aðdragandinn í nóvember færir okkur skref fyrir skref nær jólum eina síðu í senn. Við fáum höfund í heimsókn hvern föstudag í nóvember þar sem við kynnum spennandi og nýjar bækur í aðdraganda jóla, og Kynstranna allra, jólabókakvölds Bókasafns Hafnarfjarðar. Á Aðdragandanum vörpum við ljósi á allskonar ritverk og njótum flóru íslenskra bókmennta - og svo er auðvitað frábært að hlusta á smá ritsnilld og skreppa svo í Jólaþorpið til að komast í hátíðarskap!
Fyrsti höfundurinn er Jón Atli Jónasson með bókina 'Dauðinn er bara myrkur' - Magnað andrúmsloft einkennir þessa ískyggilegu og óhefðbundnu glæpasögu. Odd Strange einkaspæjari býr í gömlu hjólhýsi nærri Malaga. Hann á sér óvenjulega sögu: ólst upp í Reykjavík hjá afar sérkennilegum foreldrum, var júdókappi og starfaði í lögreglunni í Osló. Dag einn fær hann í fangið hryllilegt mál sem virðist tengjast fortíð hans.