Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Feb 16 2027 09:00

Er þitt starfsfólk meðvitað um þeirra skyldur samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka?

Með tilkomu nýrra laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka voru stórauknar skyldar lagðar á herðar aðila eins og fasteignasala, bifreiðasala, bókara og endurskoðenda. Eftirlit með málaflokknum hefur aukist og hafa fjölmargir aðilar verið beittir sektum fyrir að innleiða ekki reglurnar með fullnægjandi hætti, þ.á m. vegna skorts á þjálfun starfsmanna.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu skyldur samkvæmt lögunum og hvernig tryggja megi hlítni við þær. Efnið verður nálgast með praktískum hætti og m.a. farið yfir hvað einkennir gott áhættumat, hvernig skuli framkvæma áreiðanleikakannanir o.fl.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á regluverkinu og hvernig megi fullnægja skyldum samkvæmt því. Með þátttöku í námskeiðinu má fullnægja lagaskyldu um fræðslu starfsmanna.

Námskeiðið er fyrir starfsmenn tilkynningarskyldra aðila, svo sem:

  • Starfsmenn fjármálafyrirtækja.
  • Lögmenn og starfsmenn lögmannsstofa.
  • Fasteignasalar og starfsmenn þeirra.
  • Starfsmenn bifreiðaumboða og bílasala.
  • Leigumiðlarar.
  • Listmunasalar og listmunamiðlarar.
  • Skartgripa- og gullsalar.
  • Endurskoðunarfyrirtæki og endurskoðendur.
  • Bókarar.

Þetta námskeið hefur verið samþykkt af prófnefnd verðbréfaréttinda og veitir 3 klst. í endurmenntun vegna verðbréfaréttinda.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Peningaþvætti með almennum hætti og sögu regluverksins.
  • Skylduna til að framkvæma áhættumat á rekstri.
  • Skylduna til að framkvæma áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum.
  • Tilkynningarskyldu vegna grunsamlegra viðskipta.

Ávinningur þinn:

  • Öðlast þekkingu og skilning á helstu reglum sem gilda um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og hvernig þeim er beitt.
  • Öðlast þekkingu á helstu hugtökum regluverksins og praktískan skilning á því hvernig helstu skyldum þess er fullnægt í daglegu starfi.
  • Öðlast staðfestingu á þátttöku í fræðslu um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem uppfyllir lagakröfu peningaþvættislöggjafarinnar.