Aðskotahlutir - Útgáfuhóf!
Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions
Thu Oct 15 2026 17:00
Í tilefni útgáfu bókarinnar Aðskotahlutir eftir Einar Lövdahl verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins fimmtudaginn 15. október kl 17:00.
Höfundur les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um bókina:
Svefnvana móðir í Svíþjóð fær nístandi óþægindi úr fortíðinni á heilann. Ungur eldhugi dragnast með íslenska slaufun og stóra drauma í nýju landi. Eiga þau afturkvæmt til Íslands?
Aðskotahlutir er heillandi samtímasaga um tengsl, meðalmennsku og frama, samskipti í hjónabandi og eðli vináttu, eilífan flótta undan sársauka og eftirsjá eftir því sem aldrei varð.