AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 - BØLER KIRKJA Í OSLÓ

AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 - BØLER KIRKJA Í OSLÓ

Bøler Kirke, General Rugesvei 51, 0620 Oslo Directions

Sun Nov 22 2026 15:00

AÐVENTUHÁTÍÐ 2026

Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju í Osló þann 22. nóvember kl 15:00.

Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti.

Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning.

Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna.

Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið.

Hlý og kærleiksrík aðventustemning fyrir alla.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll!