Aðventuhátíð Kópavogsbæjar 2026

Aðventuhátíð Kópavogsbæjar 2026

Menningarhúsin, Hamraborg 2, 200 Kópavogur Directions

Sat Nov 28 2026 14:30

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar við menningarhúsin!

Það verður sannkölluð jólastemning þegar við fögnum upphafi aðventunnar með tónlist, dansi, jólaverkstæðum, skemmtilegum jólaverum og heitu kakói. Hátíðinni lýkur með því að ljósin verða tendruð á jólatrénu og jólasveinarnir mæta til leiks!

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

_______________________

DAGSKRÁ

🎄Útisvæði / útisvið

15:00-16:15 DJ Sunna Ben á útisviði við menningarhúsin

15:00-16:30 Jólasirkus Pilkington Props og verur á sveimi!

16:20-16:30 Skólahljómsveit Kópavogs leikur við útisvið

16:30-17:00 Dagskrá á útisviði. Jólaskemmtun og ljósin tendruð á útisvæði menningarhúsanna. Jólaálfarnir Þorri og Þura stýra dagskránni og skemmta. Söngkvartett Jólatímavélarinnar kemur fram og bæjarstjórinn tendrar á jólatrénu. Jólasveinar og jólaball á eftir!

🎄Gerðarsafn

15:00-15:15 Hljóðvefur um Valgerði: Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv

14:30-16:30 Jólaverkstæði ÞYKJÓ

16:00-18:00 Plötusnúður þeytir skífum í safnbúðinni

🎄Salurinn

14:30-16:30 Heitt kakó í boði!

14:30-15:00 Opnun á jólaljósasýningu 1. bekkjar Vatnsendaskóla 15:00-15:20 Brot úr Jóladraumum Íslenska dansflokksins 15:30-15:50 Tríóið Fjarkar kemur fram

16:00-16:20 Kórinn Viðlag tekur vel valin jólalög

🎄Bókasafn Kópavogs

15:00-15:30 Æfum jólalögin saman með Sigga & Ingibjörgu

15:25-15:30 Pop-up frá Kórnum Viðlagi

15:30-16:00 Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs spila á 2. hæð

🎄Náttúrusafn Kópavogs

14:30-16:30 Föndrum jólaköngla fyrir smáfuglana