Afmælis- og jólabröns Íslandsdeildar ICF
Finnsson Bistro, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík Directions
Sat Dec 12 2026 11:00
Íslandsdeild ICF er 20 ára! 🎂
Félagið var stofnað 12. desember 2006 og í tilefni af stórafmælinu ætlum við að hittast í ljúffengum afmælis- og jólabröns. Þetta er frábært tækifæri til að njóta aðventunnar með kollegum og næra bæði líkama og sál.
Rukkað verður inn á viðburðinn en við bjóðum félagsfólki að velja sjálft þá upphæð sem það kýs að greiða. Í skráningarforminu merkir þú við þá upphæð sem þú vilt greiða og þann rétt sem þú vilt panta og við sendum þér svo rukkun í netbanka fyrir því.
Við hlökkum til að eiga þessa ljúfu stund með ykkur.