AFTUR Á DANSGÓLFIÐ - diskó, 80s og 90s í Tónabíó 4. des!
RVK Brewing Co. - Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Directions
Fri Dec 04 2026 19:30
Varstu í Hollywood, Klúbbnum, Sigtúni, Casablanca, Tunglinu, Ingólfskaffi, Villta Tryllta Villa eða D-14? Þá er kominn tími til að fara AFTUR Á DANSGÓLFIÐ!
Tónabíó 4. desember frá 20:00-01:00 (húsið opnar 19:30)
AFTUR Á DANSGÓLFIÐ er danspartý þar sem dansfíklar þess tíma fá tækifæri til að rifja upp gamla takta og hitta gamla dansfélaga frá gullaldartíma skemmtanalífsins í Reykjavík; frá diskótímabilinu undir lok áttunda áratugarins, í gegnum 80s og yfir í dans- og klúbbamenningu fyrstu ára tíunda áratugarins.
Það verður epísk stemning í Tónabíói þann 4. desember.
Þetta verða ekki bara gömlu lögin!
Hugmyndin er ekki að halda hefðbundið nostalgíuball heldur að endurskapa tilfinninguna sem fylgdi því að fara út að dansa. Gestir eiga að þekkja augnablikið strax. Fyrstu taktarnir byrja og allt í einu ertu aftur kominn á dansgólfið, eins og dansflugan sem þú einu sinni varst.
AFTUR Á DANSGÓLFIÐ snýst því ekki bara um að rifja upp hvernig þetta var, heldur að safna fólkinu saman aftur, kveikja á tónlistinni og búa til nýjar minningar. Má bjóða þér upp í dans?
Miðasala:
https://tix.is/event/22543/aftur-a-dansgolfid-disko-80-s-90-s