Andrés Þór tríó – Relocate - Múlinn Jazzklúbbur

Andrés Þór tríó – Relocate - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Wed Nov 04 2026 20:00

Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Nico Moreux, bassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur

Á tónleikunum verður flutt efni af nýjustu plötu tríósins, Relocate. Platan kom út um miðjan ágúst hjá norsku plötuútgáfunni Losen Records. Tríóið hefur leikið saman um árabil og myndað sterka heild þar sem samspil, spuni og opið rými skipa stóran sess.

Relocate hefur að geyma nýja tónlist eftir Andrés Þór með áherslu á samspili tónsmíða og spuna. Tónlistin sækir í fjölbreyttan orðaforða djassins en gefur jafnframt hljóðfæraleikurunum mikið rými til að bregðast hver við öðrum og leyfa tónlistinni að þróast í rauntíma.

Á tónleikunum verður platan í forgrunni, ásamt öðru efni úr katalóg tríósins. Þar má búast við lifandi og kraftmiklum flutningi þar sem tónsmíðarnar taka á sig nýja mynd.