Angústúra á Bókahátíð í Hörpu

Angústúra á Bókahátíð í Hörpu

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Sat Nov 21 2026 11:00

Angústúra tekur þátt í Bókahátíð í Hörpu um næstu helgi, þar sem útgefendur á Íslandi munu kynna útgáfubækur ársins. Opið verður 11-17 báða daga og mikil dagskrá. Upplestur höfunda og þýðenda, teiknismiðjur og áritanir. Auk íslensku höfundanna mun Jenny Colgan vera í samtali við þýðanda sinn, Helgu Soffíu Einarsdóttur, í Rímu, sjá nánar hér: https://fb.me/e/adKhVYJx2

LAUGARDAGUR

12.00 Halla Oddný les upp úr bókinni Litli bróðir í Stemmu

12-13 Elísa Björg Þorsteinsdóttir les upp úr þýðingu sinni Kona að hálfu eftir Perumal Murugan á Norðurbakka

12.30 Rán Flygenring les upp úr bókinni Bananasafnið í Stemmu

13.30 Anna Dröfn Ágústsdóttir tekur þátt í pallborðinu Húsið sem örlagavaldur í Rímu, dagskrá Morgunblaðsins

14.50 Anna Dröfn Ágústsdóttir fjallar um bókina HÚS í Stemmu

14-15 Hjörleifur Hjartarson les upp úr Njálu á hundavaði á Norðurbakka

15-16 Örvar Smárason les upp úr Það sem við sjáum þegar við lokum augunum á Norðurbakka

16.00 Jenny Colgan í samtali við Helgu Soffíu Einarsdóttur, þýðanda sinn

16.00 Hjörleifur Hjartarson les upp úr Njálu í Stemmu

SUNNUDAGUR

13-14 Teiknismiðja Ránar & Diddu Flygenring

15-16 Anna Dröfn fjallar um bókina HÚS á Norðurbakka

Nánari dagskrá hátíðarinnar er að finna á Facebook-síðunni Bókahátíðin í Hörpu

Performers