Áramótasprengja Þjóðmála - borð á sviði

Áramótasprengja Þjóðmála - borð á sviði

Borgarleikhús. The Reykjavík City Theatre, Listabraut 3, 103 Reykjavík Directions

Wed Dec 30 2026 20:00

Áramótasprengja Þjóðmála 2026
Hinir grunuðu

Nú sprengjum við árið upp með hvelli. Þessir menn vita hvað gerðist á árinu sem senn er liðið. Kvöldið fyrir gamlárs leysa þeir frá skjóðunni í Borgarleikhúsinu. Þar mun margt koma í ljós sem engan hefði grunað.

Þjóðmál gera upp liðna atburði, leggja mat á frammistöðu stjórnmálamanna og forystumanna atvinnulífsins og spyrja hvað bíði okkar árið 2027. Sem fyrr verður ekkert talað í kringum hlutina. Hreint ekki.

Viðburðurinn verður ekki sendur út og eina leiðin til að fá sannleikann beint í æð er að mæta.

Við hlökkum til að sjá þig. Og við vitum að þú hlakkar til að sjá okkur.


Performers