Árni Vilhjálmsson opnar sýningu á Leyni ,,soldið flatur stóll og fleiri fletir´´
Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri Directions
Sat Nov 21 2026 20:00
Árni Vilhjálmsson
Soldið flatur Stólll og fleiri fletir
Listmuni sýningarinnar skortir alla dýpt og tilfinningu fyrir náttúrunni. Þeir eru ekkert að þykjast vera fjall, grasbali, himinn eða haf. Þeir eru form og litur á fleti í ramma á flötum vegg undir umferðum af málningu, en þegar betur er að gáð þá er ekkert fullkomlega flatt. Eiginlega er ekkert bratt aðeins mismunandi flatt eins og skáldið sagði.
Í náttúrunni eru fjöllin andstæða við flatneskju. Án þeirra væri sjónarröndin bara rönd sem teygði sig út yfir allan sjóndeildarhringinn. Listmálarar hafa lengi tekið þessu uppbroti fagnandi. Þeir taka þessar mishæðir og slétta út í fleti, form og liti.
Árni Vilhjálmsson, sem starfar undir listamannsnafninu Árni Vil, er íslenskur myndlistarmaður með fjölbreyttan listrænan bakgrunn. Hann útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2023 og hefur síðan haldið áfram að þróa eigin myndræna nálgun og kanna möguleika málverksins.
Árni hefur jafnframt víðtæka reynslu af skapandi starfi á öðrum sviðum lista, meðal annars tónlist og sviðslistum. Sú fjölbreytni endurspeglast í opnu viðhorfi hans til sköpunar og áhuga á að kanna ólíkar leiðir til listrænnar tjáningar.
Verk Árna gera gott betur en að fletja fyrirbrigði náttúrunnar út. Þau breyta fjalli í samfélag þar sem þorpsbúar setja lit sinn á umhverfið. Og liturinn væri lítils virði ef hann héti ekki neitt.
Plastmálning í tískulitum af litakorti Slippfélagsins tengir saman náttúru og hversdagslíf þar sem misþekkt nöfn og litir skapa ósýnilega dýpt í landslaginu án þess að missa flatneskjuna úr málverkinu.
Sérstakar þakkir: Kjartan Hallur Grétarsson, Lísandra Týra Jónsdóttir, Guðmundur Óskar Sigurmundsson, Vala Pálsdóttir, Rúnar hjá Slippfélaginu og Vikar Mar.