Árshátíð LÍV - 2026

Árshátíð LÍV - 2026

Gróska | Sykursalur, Kristínargata 1, 102 Reykjavík Directions

Sat Nov 14 2026 19:00

Kæru félagar!

Það er komið að því! Þann 14. nóvember fögnum við komandi vetri með glæsilegri árshátíð þar sem góðir félagar, frábær matur og skemmtileg dagskrá verða í aðalhlutverki.

Árshátíðarnefndin hefur lagt hart að sér síðustu vikur við að setja saman kvöld sem enginn vill missa af og við hlökkum til að sjá sem flesta mæta og njóta með okkur.

Dagskráin

📍 Sykursalurinn í Vatnsmýrinni

🕖 Húsið opnar kl. 19:00

Kvöldið hefst á fordrykk þar sem við komum okkur í hátíðarskap áður en Grillvagninn býður upp á glæsilega veislu.

Enginn annar en hinn síhressi Ívar Daníels stýrir hátíðinni af sinni alkunnu snilld og eftir borðhald, skemmtiatriði og hið sívinsæla happadrætti taka Bessi og Hlynur við og sjá til þess að dansgólfið verði vel fullt frameftir nóttu.

Miðasala

🎟️ Miðaverð er 13.900 kr.

Miðasala hefst föstudaginn 23. október í:

Arctic Sport

BRP Ellingssen

Stormi

Tryggðu þér miða og vertu með þegar við lyftum glösum, hlæjum saman og eigum eftirminnilega kvöldstund að hætti Vélsleðamanna 🍻