Ástarsöguganga
Gamli Garðskagavitinn, , 250 Garðar Directions
Sat 29.08.2026 10:30
Söguganga bókarinnar Ástarsaga í vitunum. Hjalti Örn Ólason höfundur bókarinnar og sýningarinnar Ástarsaga í vitunum, sem er á byggðasafninu, leiðir gönguna og segir frá staðháttum og sögum á hverjum stað.
Kl. 10:30 göngufólk safnast saman við gamla Garðskagavita, sem verður opinn til skoðunar. Gengið með ströndinni að Lambastaðavör, þaðan að minnismerkinu um Skagagarðinn og að tóftum Skálareykja sem eru við miðjan Skagagarð, og þaðan að Þingholti rétt við Ásgarð og lýkur göngunni á sýningunni Ástarsaga í vitunum á Byggðasafninu á Garðskaga um 12 leytið.
Bókin Ástarsaga í vitunum er til sölu á Byggðasafninu á Garðskaga, bæði á íslensku og ensku, ásamt póstkorti sem gert var í tilefni af sýningunni og útgáfu bókarinnar. Safnið selur frímerki og er hægt að setja póstkortin í póstkassa á safninu, ef einhver vill senda ljúfa ástar- og kærleikskveðju.