Upprásin | knackered,TÁR og NEI
Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Tue 01.09.2026 20:00
Á þessum tónleikum koma fram knackered, TÁR og NEI.
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.
Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
---knackered (Ida Juhl) hefur vakið mikla athygli fyrir kraftmikla og leikandi raftónlist sem sækir innblástur í ólíkar áttir. Hún hlaut Kraumsverðlaunin fyrir sína fyrstu plötu, stuttskífuna fyi (for your information), sem kom út hjá marvöðu í nóvember 2025. knackered hlaut einnig tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine fyrir bestu tónleikaframkomu ársins 2025. knackered hefur kom fram víða, meðal annars í Japan og Suður-Kóreu og mun koma fram á Iceland Airwaves haustið 2026.
Hlustið á viðtal við knackered í þættinum Ólátagarður á Rás 2.
---
Dúettinn TÁR skipa þær Elín Ey og Zöe Ruth Erwin. Saman spinna þær áhrifaríkar sögur í gegnum tónlist sem er persónuleg, tjáningarrík og opin. Hljóðheimurinn undir áhrifum af kantrí, poppi og tilraunakenndri þjóðlagatónlist, textarnir, sem sveiflast á milli einlægni og kaldhæðni, sækja í persónuleg og sammannleg stef úr hversdeginum. TÁR kemur hér fram ásamt Eyþóri Gunnarssyni á hljómborð og Kidda Snæ á trommur.
NEI skipa Birgir Jakob Hansen, Snorri Rafn Hallsson og Tómas Ævar Ólafsson. Hljómsveitin leikur íslenskt síðpönk eða kuldarokk innblásið af Joy Division, Interpol,
Sisters of Mercy og Baraflokknum svo eitthvað sé nefnt. Harðar trommur og
dillandi bassi byggja undir beittar gítarlínur og fljótandi hljóma og söng. Hljóðheimur NEI er kuldalegur þar sem taktfastur bassinn hamast undir beittum
gítar og fljótandi hljóðgervlum. NEI fangar íslenska veturinn og færir
hlustendum beint í æð.
Fyrsta plata hljómsveitarinnar NEI, ALDREI, kom út snemma sumars 2025 og bauð
hlustendum upp á síðpönk sem blæs eins og vindurinn, stingur eins og frostið.
Lagið Stundum hlaut spilun bæði á Rás 2 og X-inu og endaði á árslista Straums
fyrir 2025.
Birgir
Jakob Hansen – söngur/hljóðgervlar/forritun
Snorri
Rafn Hallsson – gítar
Tómas
Ævar Ólafsson – bassi