Bandvefslosun - Block Therapy hannað til að losa um spennu og viðloðun í bandvef.

Bandvefslosun - Block Therapy hannað til að losa um spennu og viðloðun í bandvef.

MÓAR studio, Bolholt 4, 105 Reykjavík Directions

Mon 07.09.2026 17:30

Bandvefslosun 6-tímar/vikur námskeið.

Hvað er Block Therapy?

Block Therapy er æfingakerfi þróað til að koma aftur á rennsli eða hreyfingu á bandvefinn sem oft verður stífur eða þornar upp vegna hreyfingarleysis, aldurs eða meiðsla. Þátttakendur nota til þess verkfæri, tréblokkir sem eru sérstaklega gerðar úr endurunnum við — álmur, frá Kanada. Verkfærið kallast Block Buddy eða Blokkfélaginn.

Þátttakendur leggjast á blokkina og er það samvinna líkamsþyngdar, þyngdarafls og þindaröndunar sem skapar hitaáhrif á blokkinni sem hægt og rólega „bræða“ bandvefinn, lengja og teygja, og koma af stað blóð- og súrefnisflæði til frumna í bandvefnum.

Útkoman er betra flæði í bandvefnum sem eykur hreyfigetu og betri líðan.

Mánudagar 7., 14., 21., 28. sept. og 5., 12. október 2026

Tími: Hver tími er 90 mínútur

Kl. 17.30–19.00

Staðsetning:

Bolholti 4, 2. hæð, 105 Rvk.

Verð: 35.500 kr.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Svövu Brooks

netfang. svava@svavabrooks.com

Litlir hópar.

Bandvefurinn er tengivefur sem tengir allar frumur líkamans saman. Bandvefur er blautur og próteinríkur vefur sem umlykur vöðva, líffæri, liðamót, sinar og bein líkamans og gefur þeim lögun. Hann umlykur allt.

Bandvefur getur geymt afleiðingar meiðsla, áfalla og streitu. Hann geymir líka vöðvaminni. Bandvefur er eitt kerfi – það er enginn aðskilnaður, alveg eins og æðakerfið. Hann sér um að halda öllu á sínum stað og viðheldur virkni í líkamanum.

Þar sem bandvefurinn er ein heild er algengt að finna fyrir verk á einum stað þó svo að orsökin sé á öðrum stað. Hluti af þessu námskeiði er að hjálpa þátttakendum að skoða hvaða BT-æfingar hjálpa þeim sérstaklega að finna lausn fyrir sinn líkama.

Leiðbeinandi: Svava Brooks hefur notað Block Therapy-aðferðina síðan 2021 og er vottaður BT-leiðbeinandi síðan 2024.

Litlir hópar

Skráning, umsagnir og nánari upplýsingar hér: https://www.svavabrooks.com/BT-bandvefslosun

Nánari upplýsingar: Sendið tölvupóst á svava@svavabrooks.com

Helstu áhrif bandvefslosunar:

Minnkar vöðvaspennu

Dregur úr verkjum

Eykur hreyfifærni

Eykur liðleika

Eykur orku og þrek

Bætir svefn

Minnkar vöðva- og bakverki

Eykur sveigjanleika

Ef þú vilt skoða BT nánar þá eru mörg myndbönd á YouTube. Hér er myndband sem sýnir hvernig við byrjum og hvers vegna.

https://youtu.be/gNQRTjaCTSs?si=BEr5YzlfmqmDvGCB

Performers