Beaujolais Nouveau á Röntgen!
Röntgen Bar, Hverfisgata 12, 101 Reykjavík Directions
Thu Nov 19 2026 20:00
Stærsti dagur ársins, Beaujolais Nouveau, verður haldin hátíðlegur á Röntgen í ár. Smakkaðu á fyrstu vínum ársins með Allsber og Berjamó, taktu svo fyrstu dansspor vetrarins í góðum hópi fólks.
Þriðji fimmtudagur hvers nóvember mánaðar er merkilegur dagur. Þá fagnar vínáhugafólk um allan heim þessari skemmtilegu og rótgrónu hefð Frakka og smakkar á fyrstu uppskeru ársins. Á þessum degi opnum við vínflöskur frá Beaujolais héraði og spáum fyrir um hvernig vínárið 2026 mun líta út í heild sinni.
Veisluhöldin hefjast klukkan 20:00 en við mælum með að vera tímanlega. Seldar verða flöskur og glös þar til birgðir endast.
Sjáumst í rosalegu Nouveau stuði næsta fimmtudag!