Benedikt á Bókahátíð í Hörpu
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Sun Nov 22 2026 11:00
Benedikt bókaútgáfa verður að vanda með bás á Bókahátíð í Hörpu, helgina 21. til 22. nóvember. Bækur ársins verða á sérstöku tilboðsverði! Höfundar koma við, árita bækur og afgreiða og spjalla við gesti og gangandi. Verið hjartanlega velkomin, við hlökkum til að sjá sem flesta 😄
Hér má sjá dagskrá helgarinnar:
Laugardagurinn 21. nóvember.
13:00 – 14:00 Marta María Jónsdóttir áritar Fuglamál og afgreiðir á bás.
14:00 – Brynja Hjálmsdóttir í pallborði í Rímu.
14:00 – 15:00 Margrét Bjarnadóttir les upp úr Varkár í upplestrardagskrá á Norðurbryggju.
14:30 Auður Ava Ólafsdóttir og María Elísabet Bragadóttir saman í pallborði í Rímu.
15:00 - 16:00 Auður Ava Ólafsdóttir og Margrét Bjarnadóttir árita bækur og afgreiða á Benedikts básnum.
15:00 Jón Kalman Stefánsson í pallborði í Rímu.
15:30 – 16:30 Jón Kalman Stefánsson áritar Vakir þú? á Benedikts básnum.
16:00 – 17:00 Auður Ava Ólafsdóttir les úr Tengdasyni Íslands í upplestrardagskrá á Norðurbryggju.
Sunnudagurinn 22. nóvember.
11:50 – 13:50 Upplestrardagskrá í Rímu:
- Friðgeir Einarsson les úr leikritinu Nýtt eldhús eftir máli.
- Bragi Ólafsson les úr ljóðasafninu Á horni Bayswater Road og Lækjargötu.
- Guðmundur Andri Thorsson les úr Hjá Leyningsvötnum fyrir hönd Hannesar Péturssonar.
- Karólína Rós Ólafsdóttir les úr Lífskán.
14:00 – 15:00 Bragi Ólafsson og Karólína Rós Ólafsdóttir árita bækur og afgreiða á Benedikts básnum.
14:00 – 15:00 Brynja Hjálmsdóttir les úr Undir fögru skinni í upplestrardagskrá á Norðurbryggju.
15:00 – 16:00 Brynja Hjálmsdóttir og María Elísabet Bragadóttir árita bækur og afgreiða á Benedikts básnum.
15:00 – 16:00 María Elísabet Bragadóttir les úr Þúsund barna móðir í upplestrardagskrá á Norðurbryggju.