Bleik women empowerment gusa með Eygló Rut

Bleik women empowerment gusa með Eygló Rut

Sundlaug Eskifjarðar, Dalbraut 3a, 735 Eskifjörður Directions

Mon Oct 19 2026 20:00

Gusa er hlý og nærandi upplifun þar sem við gefum líkama og huga rými til að hægja á og njóta augnabliksins. Gusan samanstendur af þremur lotum, um 12–15 mínútum hverri, þar sem hiti, ilmolíur og tónlist vinna saman að rólegri og notalegri upplifun.

Á milli lota förum við út og gefum líkamanum tækifæri til að kælast og anda. Við getum notið ferska loftsins, farið í kalt kar eða einfaldlega leyft vindinum að leika um okkur. Þar gefst líka tækifæri til að drekka vatn, fá sér ávexti eða létt snarl, spjalla saman eða einfaldlega njóta kyrrðarinnar.

Hvað gerir sauna fyrir þig?

- Bætir blóðrás – hitinn víkkar æðarnar og eykur súrefnisflæði til vöðva og líffæra.

- Slakar á vöðvum og liðamótum – hjálpar líkamanum að jafna sig eftir álag og æfingar.

- Dregur úr streitu – hitinn og andrúmsloftið róar taugakerfið og gefur huganum frið.

- Styrkir ónæmiskerfið – regluleg saunanotkun getur aukið mótstöðu líkamans gegn veikindum.

- Hreinsar húðina – svitamyndun hjálpar líkamanum að losa út óhreinindi og eiturefni.

- Bætir svefn – margir upplifa dýpri og rólegri svefn eftir góðan saunatíma.

- Góð sálræn áhrif – margir finna fyrir meiri vellíðan, jákvæðni og jafnvægi eftir regluleg

Ágóðinn rennur til Krabbameinsfélags Austfjarða