Bleikt kvöld Krabbameinsfélags Austfjarða

Bleikt kvöld Krabbameinsfélags Austfjarða

Fáskrúðsfjörður, Gilsárfoss, 751 Fáskrúðsfjörður Directions

Wed Oct 21 2026 19:00

🩷 BLEIKT KVÖLD – Sjáðu þig 🩷

Krabbameinsfélag Austfjarða býður til Bleiks kvölds í Skrúð á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 21. október.

Við ætlum að eiga saman skemmtilegt kvöld þar sem tónlist, hlátur og góð samvera verða í fyrirrúmi. Öll velkomin.

Húsið opnar kl. 19:00 og tökum við á móti gestum með fordrykk og léttum veitingum.

Dagskrá hefst kl. 20:00.

🎶 Karítas Harpa og Aron Leví sjá um tónlistarflutning og koma okkur í rétta gírinn fyrir kvöldið.

🎤 Síðan tekur Snjólaug Lúðvíksdóttir við og sér um að kitla hláturtaugarnar með uppistandssýningunni MJÖG FÍN BARA.

Snjólaug er einn fremsti uppistandari landsins og í þessari splunkunýju sýningu talar hún um allt milli himins og jarðar: gamlar frumbyrjur, laxasæði, co-parenting lífið, gusur, Temu-fíkn móður sinnar, bragðarefi og margt, margt fleira.

Sýningin gæti móðgað fólk sem hrýtur hátt og elskar sund. 😉

🩷 Ókeypis aðgangur

Á staðnum verður baukur fyrir þau sem vilja styrkja starf Krabbameinsfélags Austfjarða með frjálsum framlögum.

Komdu og njóttu með okkur — góð tónlist, góður matur, hlátur og samvera á Bleiku kvöldi.

Sjáðu þig. 🩷

📍 Skrúður, Fáskrúðsfirði

📅 Miðvikudagur 21. október

🚪 Húsið opnar kl. 19:00

🎭 Dagskrá hefst kl. 20:00

🎟️ Ókeypis aðgangur