Bókaklúbburinn Nordic Noir

Bókaklúbburinn Nordic Noir

Hafnarstræti 5, 3 hæð, húsnæði Reykjavíkurakademíunnar

Thu Oct 15 2026 19:30

Fyrsta bók vetrarins er bókin Svefngengillinn eftir sænska rithöfundinn Lars Kepler. Helga Lára Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í Höfuðborgardeild Norræna félagsins, mun leiða umræður um bókina.

Er hægt að fremja morð … án þess að muna eftir því? Lögregluforinginn Joona Linna leitar allra leiða til að upplýsa hræðileg morð.

Þeir sem hafa hug á að taka þátt eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á netfangið rht@simnet.is. Mikilvægt er að skrá sig!