Bókakynning

Bókakynning

Borgarnes Museum, Bjarnarbraut 4-6, 310 Borgarnes Directions

Mon Nov 23 2026 20:00

Bókakynning í Safnahúsi Borgarfjarðar.

Mánudaginn 23. nóvember klukkan 20:00 kynnum við fjórar nýjar bækur og fáum höfunda þeirra í heimsókn.

Helga Skúladóttir - Valdís, öll þessi þögn, bókin er auðlesin og grípandi spennusaga þar sem sögusviðið er Borgarnes.

Jovana Pavlović – Antithesis, ljóðabók sem gagnrýnir normið; hið sjálfgefna sjónarhorn sem sjaldan þarf að réttlæta tilvist sína.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir – Deig, ljóðabók um tímann, hversdaginn og töfrastundirnar. Hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2026.

Sigrún Elíasdóttir – Dagbók miðaldra unglings, bókin er gamansöm, kaldhæðin og óvægin skáldsaga af bláköldum veruleika einhleypra kvenna.

Allir velkomnir á notalega bókastund, kaffi og piparkökur