Bókmenntir og tónlist í Skáldu. Margrét Bjarnadóttir, Bergur Ebbi, Teitur Magnússon.
Skálda, Vesturgata 10a
Wed Dec 02 2026 20:00
Rithöfundarnir Margrét Bjarnadóttir og Bergur Ebbi ásamt tónlistarmanninum Teiti Magnússyni koma fram í Skáldu, bókabúð, Vesturgötu 10a og kynna þar nýútkomin verk sín. Upplestur, umfjöllun, umræður og tónlistarflutningur. Þetta verður hátimbrað, næmt og nakið "síminn-er-eins-og-hakkið" listakvöld, kjörið tækifæri til að viðra rúllukragaboli og aðrar ullartuskur. Menningarelítan og bókmenntalögreglan verða á svæðinu vopnuð augnaráðum sem brenna munu gat á allt nema biksvart leðurjakkaleður. Komið ef þið þorið, á Vesturgötuna, þar sem rofið verður gat á skammdegið og þið munuð hverfa ofan í dysina.
Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur fléttar saman minningum, hversdagslegum augnablikum, ást og missi í stuttum, áhrifamiklum brotum sem mynda frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin, en sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.
Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba er persónuleg frásögn um tæknibreytingar og áhrif þeirra á menningu, sjálfsmynd og samfélag. Bókin veltir upp spurningum um hvernig ímyndunaraflið mótar veruleika okkar á tímum gervigreindar og síbreytilegs upplýsingaumhverfis.
Askur er fjórða sólóplata Teits Magnússonar og kom út haustið 2026. Þar blandar Teitur saman þjóðlagatónlist, poppi, rokki og suðrænum áhrifum í sínum sérstæða tónheimi. Platan inniheldur meðal annars lögin Sjalið, Fegurð, Gullauga og Fjöllin og fjarlægðin.