Brek flytja Ný spor í slóð á Snorrabar
Snorra Bar, Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Directions
Fri Oct 30 2026 20:30
Brek flytja Ný spor í slóð á Snorrabar
Þjóðlagasveitin BREK stígur á svið á Snorrabar föstudagskvöldið 30. október. Nýja platan þeirra, „Ný spor í slóð“, er plata vikunnar á Rás 2 þá vikuna.
BREK leikur frumsamda, alþýðuskotna tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum og tvinnar saman íslenskan þjóðlagaarf og aðra strauma úr þjóðlaga- og dægurtónlist. Fyrsta plata sveitarinnar hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2022 sem plata ársins í þjóðlaga- og heimstónlist, og sveitin var tilnefnd í flokknum tvö ár í röð.
Á Snorrabar má búast við lögum af nýju plötunni í bland við eldra efni.
Hljómsveitina skipa Jóhann Ingi Benediktsson (gítar og söngur), Harpa Þorvaldsdóttir (söngur og píanó), Guðmundur Atli Pétursson (mandólín) og Sigmar Þór Matthíasson (kontrabassi).
Aðgangseyrir er 3.990 kr. og drykkur fylgir með.
Í samstarfi við Nordic Hostel. Skipulag: Snorri Management.