Brooks Ghost hlaupið - Draugalegasta fjölskylduhlaup ársins! 👻
Church of Grafarvogur, Fjörgyn 1, 112 Reykjavík Directions
Sat Oct 31 2026 16:30
Brooks Ghost hlaupið er👻draugalegt fjölskylduhlaup í Grafarvogi!👻og fer fram laugardaginn 31. október kl. 16:30.
Þetta er skemmtilegt fjölskylduhlaup þar sem engin tímataka er í gangi — öll eru hvött til að mæta í draugalegum búningum og passa sig á draugalegu stígunum á leiðinni!
Hlaupin er um 3 km leið í Grafarvoginum og rás- og endamark er á göngustígnum fyrir neðan Grafarvogskirkju.
Þú getur skoðað leiðina á Strava hér: https://www.strava.com/routes/3533455587219608728
Þátttökugjald og skráning
Miðaverð er aðeins 2.000 kr.
Allir velkomnir bæði börn og fullorðnir. Börn 12 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Allir þátttakendur fá lítinn og draugalegan gjafapoka sem sóttur er í Fætur Toga dagana 26. til 30. október milli 10-18.
Frábærir bakhjarlar
🍫 Nói Siríus gefur draugalegt góðgæti.
🎈 Partyland gefur hræðilega glaðninga.
🥤 Flórídana og Mix passar að enginn fari þyrstur heim!
Brooks á Íslandi veitir 30% afslátt af Ghost hlaupaskóm á öllum á eftirfarandi sölustöðum fyrir alla þá sem eru skráðir í hlaupið:
Fætur Toga: Höfðabakka 3, 110 Reykjavík
Ellingsen: Fiskislóð 1, 101 Reykjavík og Glerártorgi, 600 Akureyri
Göngugreining: Lágmúla 4, Reykjavík
Útilíf: Kringlunni, 104 Reykjavík
Vaskur: Sólvangi 5, 700 Egilsstöðum
Súnbúðin: Hafnarbraut 6, 740 Neskaupstað
Veiðiflugan: Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði
Álnavörubúðin: Larsenstræti 2, 800 Selfossi
Mættu í þínum óhuggulegasta búningi og hlauptu með okkur! 🦇