Cacao Tónheilun með Berglindi og Herberti

Cacao Tónheilun með Berglindi og Herberti

MÓAR studio, Bolholt 4, 105 Reykjavík Directions

Thu 03.09.2026 19:30

Ferðalag Berglindar í heildræna heilun hófst 2020. Hún hefur starfað sem m.a sem tónheilari síðan 2022 og verið með ýmsa tónheilunar eventa síðan þá m.a í Yogashala, Umi og Yogavin. Tónheilun hefur verið stór þáttur í sjálfsheilun hennar og að heila aðra.

Berglind er einnig menntaður Fjölskyldu og Hjónabandsfræðingur (MFT) og hefur starfað í 12 ár sem meðferðaraðili með hópum, einstaklingum og pörum og notar ýmsar aðferðir til þess.

Herbert lærði tónheilun hjá Saraswati Om og er búinn að vera að halda viðburði í svolítinn tíma. Hann er lærður yoga nidra kennari og reiki meistari. Hann hefur einnig búið til ambient tónlist síðustu tæp 10 ár undir nafninu “Hyldýpi” Það er ástríða hans að skapa rými með tónum og orku þar sem þeim sem taka þátt gefst færi á að fara á vit undirmeðvitundarinnar og hvílast í þeirri vitund sem dvelur handan hugans. Ég hlakka til þess að deila þessu rými með ykkur og skapa galdra í þágu okkar allra.

Við byrjum á Ceremonial kakói sem hjálpar okkur að ná dýpri slökun, tengjast sjálfum okkur og lenda saman í rýminu

Eina sem þú þarft að gera er að gera going, greiða í gegnum tickets og mæta í þeim fötum sem þú ert í og allt er á staðnum. Gott er að mæta amk 10 mín fyrir tímann til að koma þér vel fyrir. Tíminn byrjar kl 19:30 og er hurðin læst kl 19;30 og ekki hægt að koma inn ef tíminn er byrjaður.

Hlökkum til að sjá þig í Bolholti 4.4 hæð 3 sept kl 19:30.

Berglind og Herbert

Performers