Cask-kvöld Fágunar og Bjórmenningarfélagsins #5

Cask-kvöld Fágunar og Bjórmenningarfélagsins #5

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Skipholt 31, 105 Reykjavík Directions

Sat Nov 28 2026 20:00

Þann 28. nóvember kl. 20:00 bjóða Fágun og Bjórmenningarfélagið á fjórða cask-kvöldið í Gamla Brugghúsi RVK (Skipholt 31, gengið inn frá bílaplaninu hjá Heklu).

Aðeins um handdældan bjór: Cask-bjór er bjór sem er bruggaður og þroskaður samkvæmt gömlum breskum hefðum. Það sem gerir cask-bjórinn svo merkilegan er að hann er ósíaður og fer í gegnum náttúrulega gerjun í tunnunni og er þaðan dælt beint í glas, ýmist með handafli eða þyngdarafli. Þetta skapar einstakt bragð og áferð sem aðeins er hægt að finna í cask-bjór.

Viðburðurinn er frábært tækifæri til að upplifa cask-bjórmenningu á einstakan hátt. Boðið verður upp á nokkra cask-bjóra á handdælunni í notalegu umhverfi Gamla Brugghúss RVK.

Við hvetjum öll, bæði harða aðdáendur cask-bjórs og þau sem vilja læra meira, til að mæta og njóta góðs félagsskapar. Ókeypis aðgangur (en við tökum við frjálsum framlögum) og loforð um góða stemningu. Öll velkomin, hvort sem eru meðlimir félagana eða ekki.