KRUMMAFÓTUR 2026
Geislagata, Geislagata, 600 Akureyri, Iceland, 600 Akureyri Directions
Fri 10.07.2026 14:00
Krummafótur er grasrótarsviðslistahátíð sem haldinn verður 10.-12. júlí 2026. Allskyns sviðslistir verða í boði, og frítt er inn á alla viðburði. Við hlökkum til að sjá ykkur.
Dagskrá Krummafóts:
Föstudagurinn 10. júlí:
20:00 Opnunarveisla.
21:00 Samúðarkveðjur eftir Örnu Tryggva, Hamarstíg 6.
Laugardagurinn 11. júlí:
20:00 A horse with no game eftir Ane Stautland, Deiglunni.
21:00 Systkinasértrúaðarsöfnuður eftir Ágústu Kort, Deiglunni.
22:00 Leiklestur, Deiglunni.
Sunnudagurinn 12. júlí
Á meðan birgðir endast: Frítt pylsupartí með frírri kokteilsósu í Hlöðunni.
17:00 Leikhús-töfrar eftir Odd Klöts og Iðunni Gígju, Hlöðunni.
18:00 Grenið eftir Ágústu Kort, Hlöðunni.
19:00 Hlé eftir Önnu Maríu Antonsdóttur, Hlöðunni.
20:00 Svanasöngur eftir Anton Tsjékoff, í leikstjórn Jennýar Láru Arnórsdóttur, flutt af Benóný Arnórssyni og Arnóri Benónýssyni, Hlöðunni.
Alla helgina mun félagsvísindarannsóknarteymið Gay Lover vera að gera rannsókn á karlmennsku á Akureyri.
Frekari upplýsingar um öll verk er hægt að finna á viðburðunum tileinkuð þeim á síðunni okkar.
Verkefnið er styrkt af menningarsjóði Akureyrarbæjar.
Performers
-
KrummafóturGrasrótarsviðslistahátíð á Akureyri, haldin í fyrsta sinn 10.-12. júlí 2026